|
Áhugahópur um verndun Þjórsárvera skorar á stjórnvöld að stækka friðlandið í Þjórsárverum þannig að allar hugmyndir um Norðlingaöldulón verði úr sögunni. Þannig getur umhverfisráðherra útkljáð margra áratuga deilumál og stigið stórt skref í þágu náttúruverndar á Íslandi. Mjög brýnt er að þessi ákvörðun verði tekin nú þegar. Fram hefur komið að umhverfisráðherra hefur lýst góðum vilja sínum en hefur greinilega ekki fengið þann stuðning í ríkisstjórn sem til þarf. Munar þar mestu um að iðnaðarráðherra, forsætisráðherra og fjármálaráðherra, handhafi hlutabréfa ríkisins í Landsvirkjun, hafa ekki lýst yfir stuðningi sínum við afstöðu umhverfisráðherra. Áhugahópurinn leggur áherslu á að sveitarstjórnarmenn í Skeiða- og Gnúpverjahreppi, Ásahreppi og Rangárþingi ytra hafa ekki umboð til að koma í veg fyrir friðlýsingu. Þvert á móti hefur meirihluti hreppsnefndar Gnúpverja og síðar Skeiða- og Gnúpverjahrepps hafnað Norðlingaölduveitu á undanförnum árum. Því eru það mikil vonbrigði að fulltrúi hreppsins í umræddri nefnd hafi tekið svo einarða afstöðu gegn allri þeirri þróun í áraraðir og vandséð hvernig sú afstaða fáist rökstudd. Áhugahópurinn skorar á ríkisstjórn Íslands og einkum ofangreinda ráðherra, að lýsa afdráttarlausum vilja sínum til að stækka friðlandið þannig að friður náist um framtíð Þjórsárvera.
30. apríl 2007
|
|
![]() |
|
|
Í Tjarnaveri. Arnarfell hið mikla til hægri, Múlajökull, Hjartarfell og Nauthagajökull. |
|